TURNKEY arrow Fyrirtækið
Fyrirtækið PDF Prenta

TURNKEY ER UMBREYTINGARFÉLAG

Turnkey er umbreytingarfélag sem notast við eftirfarandi lykilþætti til að ná árangri; verkefnastjórn, greiningarvinnu og markaðsfræði.

Með samstarfi við önnur sérhæfð fyrirtæki sem Turnkey hefur innan sinna vébanda eru möguleikar hverrar hugmyndar nýttir til hins ýtrasta. Þannig er stærð félagsins í raun breytileg eftir hverju verkefni og umfang þess afstætt.

Turnkey hefur unnið við að umbreyta iðnaðarsvæði á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli í Tæknivelli. Mannvirki á umræddu svæði telja yfir 40.000 fermetra.

Turnkey hefur unnið með Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar við að umbreyta gamla varnarsvæðinu í arðbær borgaraleg not. M.a. var vistaður verkefnahópur um mannvirki og búnað á Keflavíkurflugvelli hjá Turnkey fyrir tíð Þróunarfélagsins.

Turnkey er frumkvöðull Bláa Demantsins og verkefnisstjóri þess. Hugmyndafræðin byggir á því að markaðssetja alla segla undir merkjum hans. Í dag eru eftirfarandi verkefni komin í eina sæng í Bláa Demantinum; Víkingaheimar, Víkingaskipið Íslendingur, Smithsonian sýning um víkingana, Brú milli heimsálfa, Orkuverið Jörð og fleiri seglar. Turnkey hefur unnið að umbreytingu ferðaþjónustu á Reykjanesi með Blue Diamond verkefnið að leiðarljósi.

Turnkey hefur gert fjölda viðskiptaáætlana og viðskiptamódela fyrir fyrirtæki á markaði til að umbreyta stefnumótun og rekstri. Turnkey hefur tekið þátt í fjárfestingarverkefnum með hugmyndafræði umbreytingarfjárfestis að vopni. Turnkey hefur unnið með Skandinvest við umbreytingarfjárfestingar heima og erlendis.

Turnkey vinnur nú að greiningarverkefni á Reykjanesi – Heildstæð greining á markaðssvæðinu Reykjaness – í samvinnu við Fjármálaráðuneytið, sveitarfélögin á Reykjanesi, Sparisjóð Keflavíkur og fleiri. Hugmyndafræðin er að nýta greininguna til að umbreyta markaðssvæðinu til frekari þróunar og vaxtar.

Turnkey hefur unnið fyrir fjölda fyrirtækja við umbreytingu í stefnumótun, almannatengslum, markaðssetningu og ímyndarsköpun. Til að mynda hefur Turnkey unnið með Hringrás við að umbreyta markaðssetningu og ímynd fyrirtækisins í umhverfisvæna starfsemi sem starfar við þjóðþrifamál.

Turnkey hefur jafnframt unnið að einstökum verkefnum í kynningarmálum, bæði í formi viðburðastjórnunar sem og í auglýsingagerð. Kynningarmyndir eru öflug leið til að koma ímynd fyrirtækja til skila og hefur félagið gert slíkar myndir fyrir fjölda aðila. Jafnframt hefur kvikmyndahluti Turnkey unnið með erlendum fyrirtækjum í kvikmyndagerð bæði sem framleiðendur og í framleiðsluferlinu, í tökum, klippingu myndefnis, tónlist, hljóðvinnslu og  leikstjórn.

 

Þjónusta Turnkey

Lykill að:

  • Rekstrarráðgjöf
  • Markaðsráðgjöf
  • Almannatengslum
  • Viðskiptaáætlunum
  • Rekstrarlíkönum
  • Markaðsgreiningum
  • Þarfagreiningum
  • Verkefnastjórnun
  • Fréttatilkynningum
  • Blaðamannafundum
  • Viðburðastjórnun
  • Kynningarmyndum
  • Hönnun og umbroti
  • Bæklingum
  • Fréttabréfum
  • Vefsvæðum
  • Kynningarherferðum
  • Ímyndarherferðum
  • Fjármögnun
  • Ráðgjöf frumkvöðla

Turnkey Consulting Group